Ég er 53 ára verkfræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði jafnframt framhaldsnám í London. Ég hef starfað við fjölbreytt störf, allt frá hættumati vegna ofanflóða á Veðursofu Íslands til áhættustýringar í Arion banka en er nú fjármálastjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Ég hef starfað í Sjálfstæðisflokknum frá 16 ára aldri, var í stjórn Heimdallar og ritstýrði einnig blöðum félagsins á þeim tíma: Nýjum skóla og Gjallarhorni. Þá sat ég um tíma í stjórn hverfafélags sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi og var í kjörnefnd varðar fyrir Alþingiskosningar 2016 og 2021. Þá hef ég tekið þátt í hugmyndabaráttu á öðrum vettvangi og var m.a. einn af stofnendum þjóðmálafélagsins Andríkis og var frá upphafi í ritstjórn vefs þess Vef-Þjóðviljans.
