Þorkell Sigurlaugsson

Er 72 ára. Stúdent frá MR árið 1973. Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1977.

Reynsla úr starfi við stjórnun og rekstur fyrirtækja og af öllum stærðum og gerðum. Framkvæmdastjóri hjá Eimskip og Burðarási 1980-2004, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands 2012-2022 og framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík á árunum 2004-2017 og annaðist verkefnastjórn við uppbyggingu skólans í Nauthólsvík. Var verktaki í nánast fullu starfi júní 2024-júlí 2025 við undirbúning byggingu rannsóknar og nýsköpunarsetur, Djúptækniseturs á Vísindagarðasvæði HÍ. Sjá; https://www.visindagardar.is/is/djuptaeknisetur

Starfað að málefnum frjálsra félagasamtaka. Var á árunum 2008-2014 formaður stjórnar Sjálfsbjargarheimilisins og er varaformaður landssamtakanna „Spítalinn okkar“ frá 2014 og formaður frá 2025. Spítalinn okkar www.spitalinnokkar.is eru samtök um uppbyggingu ný húsnæðis Landspítala og hvernig aðrir þættir í heilbrigðismálum geta stutt við starfsemi spítalans til að sinna sínu kjarnahlutverki.

Í XD í áratugi, en virkur á landsfundum í um það bil 12 ár, fljótlega kjörin formaður Allsherjar og menntamálanefndar og Velferðarnefndar á landsfundi og er núna í atvinnuveganefnd kosin af Miðstjórn. Varaborgarfulltrúi í Reykjavík í 10 sæti frá 2022 til dagsins í dag, en mun ekki koma nálægt þeim störfum ef kosin í kjörnefnd. netfang www.thorkellsig.is sími 6206222

Heimasíða með ítarlegum upplýsingum: https://www.thorkellsig.is/um-%C3%BEorkel

Svo og LinkedIn: https://www.linkedin.com/in/thorkell-%C3%BEorkell-sigurlaugsson-b417062a/