Við mótun framboðslistans tel ég lykilatriði að horft sé til hæfni, reynslu og heilinda frambjóðenda svo árangur náist í kosningu. Reykjavík þarf fulltrúa sem búa yfir ábyrgðartilfinningu, fjármálaskilningi og kjarki til að taka erfiðar ákvarðanir. Jafnframt er brýnt að framboðslistinn sé samheldinn hópur, þar sem allir róa í sömu átt, vinna að sameiginlegum markmiðum og styðja sterka og skýra forystu Hildar Björnsdóttur. Án samstöðu og samstillts vilja verða engar raunverulegar breytingar.
Ég vil sjá borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem setja hagsmuni borgarbúa ofar sérhagsmunum, standa við orð sín og hafa raunverulegan skilning á rekstri, forgangsröðun og afleiðingum ákvarðana. Framboðslisti þarf að vera trúverðugur, yfirvegaður og byggður á samstarfi, ekki sundurleitni eða innantómum slagorðum.
Ég tel mig vel í stakk búinn til að leggja slíkt mat á frambjóðendur. Ég hef áratuga reynslu úr stjórnun, samningum og hagsmunagæslu, meðal annars úr stjórn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálaráði og Stjórnstöð ferðamála, þar sem unnið var undir miklum þrýstingi og ákvarðanir höfðu raunverulegar afleiðingar. Ég hef jafnframt lokið námi sem viðurkenndur stjórnarmaður með áherslu á ábyrgð, fjármál og eftirlitshlutverk.
Reynsla mín snýst um að greina kjarna mála, setja skýr mörk og velja fólk sem stendur saman og ber ábyrgð. Það er sú nálgun sem Reykjavík þarfnast nú.
