Þórhildur Katrín Stefánsdóttir

Ég gef kost á mér í 2. - 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer 28. febrúar. Ég er útskrifaður lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Ég flutti á Djúpavog árið 2020 og vann fyrstu árin hjá Múlaþingi á fjármálasviði og öðlaðist þar dýrmæta innsýn í rekstur og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Í dag starfa ég sjálfstætt bæði í fjármálum fyrir fyrirtæki og í ferðaþjónustu. Ég hef tekið þátt í ýmsum félagsstörfum bæði á Djúpavogi og á landsvísu. Ég er varaformaður Landssambands hestamanna, sit í stjórn hollvinasamtaka gömlu kirkjunar á Djúpavogi og sit í stjórn hestamannafélagsins Glampa. Þá hef ég reynslu af stjórnmálastarfi innan Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, þar sem ég sat meðal annars í íþróttaog tómstundanefnd, kjörstjórn og stjórn Viljans ungra sjálfstæðismanna.

Ég vil beita mér fyrir öflugri byggðaþróun með bættum samgöngum, sterkari innviðum, atvinnusköpun og traustri fjármálastjórn sveitarfélagsins.

Ég hef fylgst með Múlaþingi dafna undanfarin ár og tel mig búa yfir reynslu, þekkingu og eldmóði til að leggja mitt af mörkum til að gera gott bæjarfélag enn betra. Þess vegna býð ég mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi.

Þórhildur Katrín Stefánsdóttir