
Ég er fæddur og uppalinn Héraðsmaður og hef búið þar allt mitt líf. Ég er 60 ára gamall húsasmiður og hobbybóndi og starfa sem vaktstjóri hjá Isavia á Egilsstaðaflugvelli og hef gert síðan 2012. Ég hef verið viðloðandi sveitarstjórnarpólitík síðan 2004.
Síðustu 4 ár hef ég verið varaformaður umhverfis og framkvæmdaráðs Múlaþings. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga gegnum tíðina, en flest hafa þau á einhvern hátt tengst skipulags, umhverfismálum og fasteignum sveitarfélagsins. Stækkun sveitarfélagsins með stofnum Múlaþings hefur verið áskorun en ég vil meina að við getum litið um öxl og sagt að okkur hafi tekist ágætlega til þó auðvitað sé alltaf eitthvað sem betur mætti fara og ganga hraðar.
Ég leita eftir stuðningi í 4 sæti lista sjálfsstæðisflokksins fyrir komandi kosningar.
