Reykjavíkurkjördæmi suður nær yfir hálfa Reykjavík. Í kjördæminu eru 11 þingmenn, þar af 2 uppbótaþingmenn. Kjördæmamörk eru þannig: Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 17,6% atkvæða í kosningunum 2024 í Reykjavíkurkjördæmi suður og þrjá þingmenn kjörna.
Þingmenn kjördæmisins:
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Hildur Sverrisdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
- Jón Pétur Zimsen