Sylvía Ösp Jónsdóttir

Sylvía Ösp er 27 ára, fædd og uppalin Borgfirðingur. Hún þekkir vel styrkleika samfélagsins og þær áskoranir sem fylgja því að búa og starfa í dreifbýlu sveitarfélagi.

Sylvía starfar á leikskólanum Glaumbæ á Borgarfirði. Hún er með B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri og stundar nú meistaranám (M.T.) í kennslufræðum. Menntun og velferð barna eru henni sérstaklega hugleikin og hún telur mikilvægt að hlúa að öflugum leik- og grunnskólum sem grunn að sterku samfélagi.

Sylvía er virk í björgunarsveitarstarfi og er varaformaður Sveinunga á Borgarfirði, þar hefur hún öðlast dýrmæta reynslu af samvinnu, ábyrgð og viðbrögðum þegar á reynir. Hún leggur áherslu á að sveitarfélagið styðji við sjálfboðaliðastarf og tryggi öryggi íbúa.

Sylvía býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi með það að markmiði að vera málefnaleg, ábyrg og jákvæð rödd fyrir samfélagið.