Reykjavíkurborg hefur alla burði til að verða borg tækifæranna. Með því að stytta boðleiðir, lækka álögur á fólk og fyrirtæki, opna fyrir uppbyggingu á hagstæðu byggingarlandi og greiða niður skuldir með sölu opinberra fyrirtækja á samkeppnismarkaði mun borgin snúa vörn í sókn segir í stjórnmálaályktun Reykjavíkurþings Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjvík. Ályktunin var samþykkt samhljóma en þingið, sem stóð í tvo daga, var opið öllum sjálfstæðismönnum í Reykjavík.
Í ályktuninni segir jafnframt að borgin þurfi að hverfa frá þrengingum og sækja fram svo einstaklingar á öllum æviskeiðum fái notið sín. Þá þurfi borgin að sækja fram í orkuskiptum og vera leiðandi í innleiðingu nýrra og byltingarkenndra lausna í samgöngumálum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins setti Reykavíkurþingið en auk hans fluttu ávörp Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Eyþór Arnalds oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Fundarstjórar voru Birgir Ármannsson forseti Alþingis og Elín Engilbertsdóttir varaformaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Undirbúningur þingsins og vinna við drög að málefnaályktunum hefur staðið frá því í nóvember á síðasta ári. Í undirbúningsnefnd þingsins voru Einar H. Jónsson, formaður, Einar Sigurðsson, Elín Engilbertsdóttir, Leifur Kaldal, Sandra Hlíf Ocares, Sigurður Helgi Birgisson og Stefnir Kristjánsson.
Lesið stjórnmálaályktun þingsins í heild sinni hér.
Á þinginu var unnið í fimm málefnahópum og má lesa ályktanir hópanna hér.