Söluvarningur í tilefni 95 ára afmælis

Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldis og 95 ára afmælis Sjálfstæðisflokksins framleiðir flokkurinn sérmerkta vandaða penna í takmörkuðu númeruðu magni sem verða seldir á góðu verði. Jafnframt verða seldir sérmerktir spilastokkar á góðu verði. Er þetta gert til að minnst þessara stórviðburða og samofinnar sögu lýðveldis og flokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn var m.a. stofnaður til að tryggja fullt sjálfstæði þjóðarinnar og hefur frá því það náðist 17. júní 1944 átt stóran þátt í því að móta það samfélag sem við búum í. Þar sem við fórum úr því að vera eitt fátækasta ríki Vestur-Evrópu sem þáði þróunaraðstoð yfir í að vera eitt það ríkasta sem í dag lætur gott af sér leiða víða um heim.

Kaupið sérmerkta úrvalspenna – takmarkað magn

Pennarnir verða einungis framleiddir eftir pöntunum, þó að hámarki 300 stykki. Grafið er í pennann öðru megin „Sjálfstæðisflokkurinn 95 ára“ og „Lýðveldið Ísland 80 ára“ hinu megin auk þess sem fálkinn prýðir lok pennans.

Hver penni kemur í öskju og með fylgir staðfestingarskjal þar sem númer pennans kemur fram. Fyrstu tíu pennarnir voru seldir á hærra verði og seldust upp strax. Enn er hægt að kaupa penna á almennu verði, 18.500 kr. Kaupa penna hér:

Pennarnir verða afgreiddir í næsta mánuði. Tilkynnt verður þegar þeirra pöntun er komin í hús.

Sérmerktir spilastokkar

Jafnframt því að gefa út sérmerkta penna hefur flokkurinn látið útbúa sérmerkta spilastokka til að minnast þessara merku tímamóta í sögu lýðveldis og Sjálfstæðisflokksins.

Spilastokkarnir eru merktir eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan.

Hver spilastokkur kostar 1.500 kr. og er hægt er að kaupa spil hér fyrir neðan. Magnafsláttur ef fleiri spilastokkar eru keyptir.

  • Einn spilastokkur 1.500 kr, kaupa hér.
  • Tveir spilastokkar 2.500 kr. kaupa hér.
  • Þrír spilastokkar 3.400 kr, kaupa hér.
  • Fjórir spilastkokkar 4.300 kr, kaupa hér.
  • Fimm spilastokkar 5.000 kr, kaupa hér.