Sóley Margeirsdóttir

Sóley Margeirsdóttir heiti ég og er 42 ára. Ég er fædd og uppalin í Keflavík en flutti árið 2017 í Rangárþingi ytra. Ég bý á Ytrivelli í Landsveit.

Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er með B.Sc gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef starfað sem grunnskólakennari frá árinu 2010 og kenndi við Akurskóla í Reykjanesbæ fyrstu 7 árin. Ég hef starfað við Laugalandsskóla frá haustinu 2017, en þar hef ég sinnt íþrótta- og sundkennslu, umsjónarkennslu ásamt því að kenna hinar ýmsu greinar.

Hestamennska hefur verið stór hluti af mér frá barnæsku og er ég stjórnarmaður í Landssambandi hestamannafélaga (LH). Ég hef mikinn áhuga á félagsmálum, sit í landsliðsnefnd og var í æskulýðsnefnd LH til margra ára. Ég er í stjórn hestamannafélagsins Geysis, stjórn Rangárbakka og Rangárhallar. Ég er formaður kvenfélagsins Lóu í Landsveit og Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum.

Foreldrar mínir hafa verið með hrossarækt frá árinu 2005 á Vöðlum ásamt því að vera með hænur og kindur.

Ég hef ákveðið að bjóða áfram krafta mína í 3.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í Rangárþingi ytra í vor.

Með þátttöku minni vil ég áfram leggja mitt af mörkum til að skapa samfélag þar sem er gott að búa og að þjónusta sé til staðar fyrir alla.