Sigríður Ragna Sigurðardóttir

Stúdent frá MR 1964

Kennari frá Kennaraskóla Íslands 1965

Kennari við Álftamýrarskóla Í Reykjavík 1965 - 1974

Sjónvarpskynnir frá stofnun Sjónvarpsins 1966 - 1972, vann við barnaefnið hjá Sjónvarpinu 1978-1979 og fast starf sem yfirmaður barnaefnis hjá innlendri dagskrárdeild frá 1985-2010

Kennari við Melaskóla 1981- 1984

Sat í norrænni nefnd Barn og kultur fyrir menntamálaráðuneytið frá 1983-1986, Formaður þjóðhátíðarsjóðs um tíma, og hinum ýmsu nefndum á vegum borgarinnar og ríkisins.  Sat í skólanefnd Fjölbrautarskólans við Ármúla frá upphafi og var formaður í þeirri nefnd nokkur kjörtímabil.

Kynnti íslenskan tískufatnað fyrir Modelsamtökin, Rammagerðina, Hildu og Hótel Loftleiði og fór fyrir þá aðila og Útflutningsmiðstöð iðnaðarins til nokkurra borga í Kanada og síðar í Bandaríkjunum til að kynna íslenskan fatnað. Kynnti lengi á íslenskan fatnað á Hótel Loftleiðum mest.

Hef unnið í hinum ýmsu félögum innan Sjálfstæðisflokksins frá blautu barnsbeini. Byrjaði á Selfossi og vann fyrir föður minn Sigurð Óla Ólafsson fyrrverandi alþingismann í kosningum í Árnessýslu.

Í Reykjavík hóf ég störf í stjórn Hvatar, síðar í stjórn Nes- og Melahverfis til margra ára og var formaður þar í mörg ár og sat í Verði. Hef átt sæti í mörgum kjörnenfdum gegnum árin.

Fyrst og fremst er ég gift góðum manni, Hákoni Ólafssyni verkfræðingi og við eigum saman þrjú yndisleg börn, Kristínu Mörthu verkfræðing, Sigurð Óla hagfræðing og Hrefnu Þorbjörgu sjúkraþjálfara.  Það er mín mesta gæfa að eiga líka dásamleg sjö barnabörn að ógleymdum bestu tengdabörnum sem hugsast getur.