UNGT FÓLK TIL ÁBYRGÐAR
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ þann 31. janúar.
Á þessu kjörtímabili hef ég tekið virkan þátt í bæjarmálum. Ég hef starfað sem aðalmaður í umhverfisnefnd, einnig hef ég setið sem varamaður í fræðslunefnd og skipulagsnefnd Mosfellsbæjar.
Ég hef einnig tekið virkan þátt í starfi ungra kjósenda og var formaður Ungra Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ og í stjórn sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS), þar sem ég hef unnið að því að efla tengsl ungs fólks við bæjarmálin og samfélagsumræðu. Ég tel það afar mikilvægt að ungt fólk hafi skýra rödd í mótun framtíðar Mosfellsbæjar. Við eigum ekki að horfa á komandi kynslóðir sem áhorfendur heldur sem virka þátttakendur sem móta leiðina áfram.
Mosfellsbær stendur frammi fyrir stórum og spennandi verkefnum: uppbyggingu hverfa, bættri þjónustu, auknum tækifærum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur og ekki síst því að halda áfram að byggja upp öflugt og ábyrgt samfélag þar sem öllum líður vel. Til þess þarf bæði reynslu og ferska sýn. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að ná utan um þessi verkefni af ábyrgð, framtíðarsýn og samvinnu.
Saman gerum við góðan bæ enn betri!
Ragnar Bjarni Zoëga Hreiðarsson
