Prófkjör í Eyjum 13. Mars
Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs vegna vals á frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins, D-lista, í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum, flokksbundnir sjálfstæðismenn og búsettir í Vestmannaeyjum.
Prófkjörið fer fram föstudaginn 13. mars 2026.
Frambjóðendur
Frambjóðendur eru hvattir til að kynna sér vel prófkjörsreglur flokksins sem og þau ákvæði sem finna má í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins varðandi prófkjör og framboðsmál.
Skil á framboði
Framboðsfrestur rennur út föstudaginn 27. febrúar n.k. kl. 18:00.
Framboði er skilað rafrænt inn á mínum síðum á xd.is
Hver frambjóðandi skal skila inn meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum, hið minnsta, búsettum í Vestmannaeyjum. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en fjórum frambjóðendum.
Frambjóðendur sjá um að skrá meðmælendur inn rafrænt með framboði ásamt því að senda undirritanir meðmælenda með umsókn sinni.
Frambjóðendur geta nálgast eyðublað til að safna meðmælum í prófkjörinu hér.
Hver og einn frambjóðandi skal skila ljósmynd og allt að 250 orða kynningartexta með framboði sínu. Efnið verður notað til að kynna frambjóðendur. Frambjóðendum er að auki heimilt að láta fylgja með ferilskrá og senda með hlekki inn á heimasíðu, samfélagsmiðla og annað sem tengist framboði þeirra.
Allar nánari upplýsingar veita;
Grímur Gíslason formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Sími : 840-0040, netfang : grimur@atlas.is
Bjarni Ólafur Guðmundsson, kjörnefndarfulltrúi. Sími: 896-6818 netfang: bog@eyjar.is
