Norðausturkjördæmi nær frá Siglufirði að Djúpavogi. Í kjördæminu eru 10 alþingismenn, þar af 1 uppbótaþingmaður. Til norðausturkjördæmis teljast eftirtalin sveitarfélög: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Múlaþing, Fljótsdalshreppur og Fjarðabyggð.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 15% atkvæða í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2024 og tvo þingmenn kjörna.
Þingmenn:
- Jens Garðar Helgason
- Njáll Trausti Friðbertsson