Ég, Magnús Geir Sigurgeirsson, 67 ára Árbæingur og eldri borgari, er viðskipta- og stjórnsýslufræðingur að mennt, frá Háskóla Íslands.
Síðastliðin 25 ár hef ég starfað við opinber innkaup, framkvæmd útboða og samningagerð, hjá Landsneti sl 2 ár og áður í 23 ár hjá Ríkiskaupum. Áður starfaði ég við vélasölu, innflutning, útflutning, sjómennsku og landbúnað.
Hef verið í sjálfstæðisflokknum í um 35 ár, hef tekið þátt í málefnastrafi og sótt alla landsfundi sl 30 ár og einnig sótt þau Reykjavíkurþing sem haldin hafa verið í seinni tíð til stefnumótunar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga.
Hef einnig stundað flokksstarfið í Árbænum lengi og var formaður félags sjálfstæðismanna í Árbæ, Selás, Ártúnsholti og Norðlingaholti árin 2015-2017.
Ég legg áherslu á breidd frambjóðenda á lista flokksins, eftir þekkingu á málefnum og reynslu í starfi, aldri og búsetu, til að byggja upp góða liðsheild til að takast á við rekstur borgarinnar og þjónustu við alla borgarbúa og þá ekki síst eldri borgara í Reykjavík.
Magnús Geir Sigurgeirsson
Melbæ 16
s.6931420 - email : magnusgeir3@gmail.com
