Leifur Skúlason Kaldal

Ég er 46 verkfræðingur með meistaragráðu frá Háskóla Íslands og DTU í Kaupmannahöfn. Ég starfa sem sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá Hnit Artelia og sat í stjórn Hnits Verkfræðistofu 2014-2025. Áður starfaði ég sem burðarþols og jarðtæknisérfræðingur. Ég hef starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 30 ár fyrst sem sjálfboðaliði í kjördeild og í úthringingum en síðar sem stjórnarmaður í sjálfstæðisfélögum og fulltrúaráðinu Verði auk þess sem ég hef tvisvar verið aðstoðarmaður umboðsmanns flokksins í Alþingiskosningum. Ég hef verið óslitið í stjórn Varðar frá árinu 2014, fyrst sem varamaður en sem aðalmaður frá 2018. Ég var formaður Félags sjálfstæðismanna í Háaleiti 2018-2023 og áður varaformaður þess félags. Ég er nú formaður Félags sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi og er einnig umsjónarmaður félagsheimilis Sjálfstæðisflokksins í Mjódd. Ég er ritari fulltrúaráðsins Varðar en var áður varaformaður Varðar. Ég hef meðal annars setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, laganefnd Varðar, undirbúningsnefnd Reykjavíkurþings, yfirkjörstjórn og kjörnefnd á vegum Varðar. Á nýliðnu Reykjavíkurþingi var ég formaður umhverfis-, samgöngu og skipulagsnefndar. Árið 2025 var ég formaður borgarmálahóps Varðar sem hafði meðal annars það hlutverk að skoða aðferðir við val á lista og undirbúa málefnastarf.