Leiðtogaprófkjör Reykjanesbæ 31. janúar

Leiðtogaprófkjör sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi. Prófkjörið verður haldið á Réttinum, Hafnargötu 90 og kjörstaðurinn verður opinn milli kl 09:00-20:00.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 22. janúar og stendur til föstudagsins 30. janúar.

Tveir kjörstaðir eru í boði:

  • Valhöll,  Háaleitisbraut 1, Reykjavík á virkum dögum milli kl. 10:00-16:00
  • Sjálfstæðissalurinn, Grófinni 8, Reykjanesbæ á frá 22. janúar - 30. janúar milli kl 17:00-19:00

Til að greiða atkvæði (hvort sem er utan kjörfundar eða á kjördegi) þarf að vera skráður í Sjálfstæðisflokkinn og hafa gild skilríki

 

Frambjóðendur

3 framboð bárust í prófkjörinu sem fer fram laugardaginn 31. janúar 2026.

Eftirfarandi gefa kost á sér (hægt er að smella á nafn hvers og eins til að sjá upplýsingar um frambjóðendur):