Landsfundur 2011

40. landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram í Laugardalshöll dagana 17. - 20. nóvember 2011. Yfirskrift fundarins var „Nýtum tækifærin“. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð af vel á annað þúsund fulltrúa. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er ein stærsta lýðræðissamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.

Ályktanir 40. landsfundar Sjálfstæðisflokksins má finna hér.

Kosningar

Kosningar fóru fram í embætti formanns og varaformanns. Úrslit urðu þessi:

Formaður

  • Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður flokksins með 727 atkvæðum eða 55%.
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir hlaut 577 atkvæði eða 43,6%.

Varaformaður

  • Ólöf Nordal var endurkjörin varaformaður með 941 atkvæði eða 80%.
  • Halldór Gunnarsson hlaut 101 atkvæði eða 9%.