Ívar Karl Hafliðason

Ég hef ákveðið að gefa áfram kost á mér í 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi fyrir komandi sveitastjórnarkosningum. Síðasta kjörtímabil hefur verið lærdómsríkt og framtíða Múlaþings björt og ég leitast eftir ykkar stuðningi til að leiða okkar frábæra samfélag áfram til enn betri hluta næstu fjögur árin.

Ég er giftur þriggja barna faðir, með BS gráðu í umhverfis- og orkufærði, á og rek byggingarfyrirtæki. Ég hef verið í sveitastjórn frá kosningum 2022 og verið virkur í sveitastjórnarmálum síðan 2018.

Áherslumál mín eru skóla- og íþróttamál, uppbygging í þágu íbúa, atvinnumál og síðan fjármál sveitafélagsins sem eru undirstaða alls. Ég er í sveitastjórn, byggðaráði, formaður stjórnar HEF veitna auk þess að sitja í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ég vill vera hluti af öflugun lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum og við munum leiða Múlaþing áfram veginn.