Ingvar Pétur Guðbjörnsson

Ég er fæddur 5. mars árið 1979. Bjó fyrstu árin í sveit en búið á Hellu síðan 1988 og hér liggja ræturnar. Eiginmaður minn er Charles A. Gittins þýðandi.

Ég lauk búfræðiprófi árið 2001 og BA-prófi í miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst árið 2020.

Á fjölbreyttum starfsferli hef ég m.a. starfað sem aðstoðarmaður upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar og kynningarfulltrúi fyrirtækisins á Suðurlandi, verið blaðmaður á Morgunblaðinu, aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, verkefnastjóri fyrir Félag skógarbænda á Suðurlandi og síðustu átta árin starfað sem upplýsingafulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Ég rek lítið sauðfjárbú, stunda hrossarækt og sinni tilfallandi fararstjórn í hestaferðum á sumrin. Hef langa reynslu af sveitarstjórnarmálum. Tók fyrst sæti í sveitarstjórn 2002 og verið oddviti D-listans síðan 2022.

Af áherslumálum er af mörgu að taka en má m.a. nefna ráðdeild í rekstri sveitarfélagsins, hóflega skatta og öfluga þjónustu. Mikilvægt er að leggja meiri áherslu á fjölbreyttari atvinnuuppbyggingu og nýsköpun í sveitarfélaginu. Með fleiri störfum skapast jarðvegur fyrir meiri hagsæld og fjölgun íbúa sem eykur sjálfbærni samfélagsins til frambúðar. Ljúka þarf við stórar framkvæmdir og huga betur að viðhaldi á eignum.

Ég sækist eftir 1. sæti listans og heiti því að vera áfram heill og trúr í mínum störfum hljóti ég brautargengi í prófkjörinu.

 

Facebook: https://www.facebook.com/ingvarpetur1

Instragram: https://www.instagram.com/ingvarpg/

Heimasíða: www.ingvarpetur.is

Netfang: ingvarp@rang.is

Sími: 6991799