Haraldur Benediktsson alþingismaður Norðvesturkjördæmis og varaformaður fjárlaganefndar verður í beinni á næsta laugardagsfundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs.
Mikið mæðir á fjárlaganefnd þessa dagana og mun Haraldur fara yfir málin, ásamt öðrum aðkallandi verkefnum.
Fundinum verður streymt á Facebook laugardaginn 17. október kl. 10:00, sjá nánar hér.
Við hvetjum félagsmenn til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundinn á netfangið xdkop@xdkop.is, einnig verður tekið við fyrirspurnum meðan á fundinum stendur.
Hittumst á netinu.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs