Njáll Trausti Friðbertsson sendir út hlaðvarpið Næstu skref í beinni útsendingu á Facebook einu sinni í viku. Njáll Trausti, sem er þingmaður Norðausturkjördæmis, er varaformaður utanríkismálanefndar, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins og situr í atvinnuveganefnd.
Í Næstu skrefum er horft til framtíðar. Umræða um allt milli himins og jarðar, verkefnin fram undan og hvar tækifærin liggja. Þættirnir eru sendir út í beinni útsendingu á Facebook-síðu Njáls Trausta og svo gerðir aðgengilegir hér á síðunni, á YouTube og á helstu hlaðvarpsveitum.
Þáttur 23 - Orkumálin
Gestur: Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri
Þáttur 22 - Halldór Blöndal – 60 ár með þingflokknum
Gestur: Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis.
Þáttur 21 - Norðurslóðamiðstöð á Akureyri
Gestur: Embla Eir Oddsdóttir forstöðumaður Norðurslóðanets
Þáttur 20 - Spjallað við Eyjólf Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri
Gestur: Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri.
Þáttur 19 - Spjallað við Þórdísi Kolbrúnu
Gestur: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þáttur 18 - Ísland ljóstengt, innviðir og öryggi
Gestur: Haraldur Benediktsson, alþingismaður
Þáttur 17 - Akureyrarflugvöllur og millilandaflug
Gestir: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, flugmaður og talsmaður vinnuhóps sem hefur starfað undir heitinu N-ICE Air.
Þáttur 16 - Flugrekstur á Akureyri
Gestur: Sigurður Aðalsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Flugfélags Norðurlands (FN) og flugstjóri hjá FN
Hlekkur á þáttinn á YouTube
Þáttur 15 - Grænlandsskýrslan
Gestir: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður starfshóps um gerð skýrslunnar.
Þáttur 14 - Landsbyggðarvinkillinn
Gestir: Hafdís Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ, Berglind Harpa Svavarsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og Hildur Sólveig Sigurðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum.
Þáttur 13 - Samgöngumál í fjallabyggð
Gestir: Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, Helga Helgadóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Fjallabyggð og Tómas Atli Einarsson, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð.
Þáttur 12 - Snemmtæk íhlutun í menntakerfinu
Gestur: Ásthildur Bjarney Snorradóttir, talmeinafræðingur
Þáttur 11 - Samgöngur á landi
Gestur: Hreinn Haraldsson, fyrrverandi vegamálastjóri.
Þáttur 10 - Heimsfaraldur COVID 19 og sjúkraflugið á Íslandi
Gestir: Björn Gunnarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Fluglæknir með hléum frá árinu 1996, í Bandaríkjunum, björgunarþyrlum í Noregi og á Íslandi, Jón Torfi Halldórsson, yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, sóttvarnarlæknir Eyjafjarðar umdæmis og fluglæknir og Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri slökkviliðsins á Akureyri. Ólafur er einnig yfirmaður sjúkraflutninga á starfsvæði HSN-Akureyri og Mýflugs og formaður fagdeildar stjórnenda hjá Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Þáttur 9 - Jóla- og áramótaþáttur
Gestir: Fýlupúkafélagið, Brynjar Níelsson, Haraldur Benediktsson og Óli Björn Kárason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Þáttur 8 - Orkuskipti í samgöngum
Gestir: Ingunn Agnes Kro framkvæmdastjóri Jarðvarma og fyrrum framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins og Sigurður Ingi Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkusetursins.
Þáttur 7 - Staða drengja í menntakerfinu
Gestir: Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálfræði við HR og Háskólann í Þrándheimi í Noregi og Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs og „Strategist“ hjá CCP.
Þáttur 6 - Álframleiðsla á Austurlandi
Gestir: Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri rekstrarþróunar og staðgengill forstjóra Fjarðaráls og Ingólfur Helgason, framkvæmdastjóri álframleiðslu hjá Fjarðaráli.
Þáttur 5 - Öryggismál og flugöryggismál sem tengjast Reykjavíkurflugvelli.
Gestir: Ingvar Tryggvason, formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóri hjá Icelandair og Dr. Þorgeir Pálsson fyrrverandi flugmálastjóri og prófessor emerítus við Háskólann í Reykjavík.
Þáttur 4 - Norræn utanríkis- og öryggismál og tækifæri norrænu ríkjanna til aukinnar samvinnu í málaflokknum
Gestir: Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra og skýrsluhöfundur nýútkominnar skýrslu um norræn utanríkis- og öryggismál og Jóna Sólveig Elínardóttir, deildarstjóri á öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Þáttur 3 - Staðan í ferðaþjónustunni á tímum kórónuveirunnar.
Gestir: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.
Þáttur 2 - Hagkerfi framtíðarinnar, aukin áhersla á sjálfbærni og samkeppnishæfni í græna hagkerfinu
Gestir: Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims og Sigurður H. Markússon, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun.
Þáttur 1 - Reykjavíkurflugvöllur, innanlandsflug og orkuskipti í flugi
Gestir: Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins og Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Hótel Rangá, forsvarsmenn Hjartans í Vatnsmýri.