Gyða Árný Helgadóttir

Ég býð mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til sveitarstjórnar Rangárþings ytra með það að markmiði að efla sveitarfélagið sem fjölskylduvænt, öflugt og framtíðarsinnað samfélag, staður þar sem fyrirtæki vilja fjárfesta. Ég legg áherslu á ábyrga fjármálastjórn, skýra stefnu og gott samstarf við íbúa og atvinnulíf.

Íbúarnir eru hornsteinn samfélagsins. Ég vil skynsamlega uppbyggingu húsnæðis og samfélag þar sem allir fá að blómstra, sveitarfélag sem setur fjölskylduna í forgang.

Sterkt atvinnulíf er forsenda blómlegs sveitarfélags. Ég vil stuðla að því að Rangárþing ytra sé aðlaðandi fyrir fyrirtæki með skýru regluverki, góðri þjónustu og jákvæðu viðmóti sem hvetur til fjárfestinga og nýrra starfa. Með öflugum innviðum og aðlaðandi umhverfi byggjum við traustan grunn til framtíðar.

Ég er sjúkraliði að mennt og hef ásamt eiginmanni mínum, Hallgrími Óskarssyni, rekið gluggaframleiðslufyrirtæki í 22 ár. Einnig byggðum við upp og rákum hótel í sjö ár, þar til við seldum það árið 2024. Ég hef jafnframt m.a. starfað sem sjúkraliði, neyðarvörður(EMD), verkefnastjóri almannavarna og framkvæmdarstjóri íþróttafélags. Ég er eiginkona, móðir, stjúpmóðir og amma og vil leggja mitt af mörkum til að Rangárþing ytra verði sterkt, öruggt og eftirsóknarvert sveitarfélag til framtíðar.