Ég býð mig aftur fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og sækist eftir 2-3 sæti á listanum.
Í mínum huga snýst sveitarstjórnarpólitík ekki um að vera háværastur á svæðinu eða að reyna að þröngva eigin sjónarmiðum á aðra. Hún er í eðli sínu ólík landspólitík – hér snýst starfið fyrst og fremst um samvinnu, lausnamiðaða hugsun og að vinna sameiginlega að hagsmunum íbúa.
Í sveitarstjórnarstörfum kemur oft fyrir að við séum sammála þvert á flokka, þó vissulega eru mál sem skipti fólki í hópa. Það sem mér þykir mikilvægast er að geta unnið vel með fólki óháð skoðunum, vera opin fyrir rökum annarra og leita farsælla niðurstaðna – án þess þó að gleyma fyrir hvað við stöndum. Sumir eru mér kannski ósammála um þessa nálgun og það er allt í lagi. Ég veit jafnframt að aðrir eru mér sammála og lít svo á að á lista þurfi að vera fólk fyrir alla. Styrkurinn í listanum felst í fjölbreytninni og í því að ólíkar raddir vinni saman að sameiginlegum markmiðum.
Á kjörtímabilinu sem er að ljúka hef ég gegnt hlutverki aðalmanns í Sveitarstjórn Múlaþings og Fjölskylduráði, auk þess að vera formaður heimastjórnar á Djúpavogi. Samhliða því hef ég tekið þátt í flokksstarfi sem stjórnarmaður í Landssambandi sjálfstæðiskvenna og sit í stjórn Sjálfstæðiskvennafélagsins Auði á Austurlandi. Þessi reynsla hefur styrkt mig í að vinna með ólíku fólki, takast á við krefjandi mál og leggja áherslu á ábyrgð og gagnsæi í störfum.
Ég vil vinna áfram að öflugri grunnþjónustu, ábyrgum fjármálum og skynsamlegri uppbyggingu í sveitarfélaginu, í anda sjálfstæðisstefnunnar. Ég óska eftir þínum stuðningi í prófkjörinu.
