Ég heiti Guðmar Aubertsson er dýralæknir og bý á Hellu. Ég er giftur Jakobínu Agnesi Valsdóttur og á með henni 5 stráka. Ég hef búið í sveitarfélaginu fyrst 1997-1998. Þá fór ég í nám til Austurríkis og kom aftur 2004. Fá 2004 til 2020 bjó ég á Sandhólaferju en frá 2020 hef ég búið að Þrúðvangi 8 á Hellu.
Vegna Starfs míns sem dýralæknir ferðast ég mikið um sveitarfélagið og hitti marga bæði í sveitinni og á Hellu, tel mig þess vegna hafa góða innsýn í þarfir og óskir þeirra sem í sveitarfélaginu búa.
Ég hef mikinn áhuga á því að leggja mig allan fram um að gera samfélagið sem við búum í ennþá betra enn það er, meira aðlaðandi fyrir fyrirtæki þannig að störfum fjölgi og verði fjölbreyttari. En einnig meira aðlaðandi fyrir fólk sem kæmi til með að sinna þessum störfum. Til þess að þetta geti orðið að veruleika þarf að taka til hendinni á mörgum sviðum.
Ég býð mig fram í 1.-2. Sætið í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi Ytra sem fram fer þann 7 febrúar 2026. Nái ég kjöri mun ég ekki láta mitt eftir liggja.
Virðingarfyllst
Guðmar Aubertsson dýralæknir
