Grímur Orri Sölvason

Grímur Orri Sölvason heiti ég og er 33 ára. Ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og fluttist til Seyðisfjarðar sumarið 2021. Ég býð mig fram til kjörs í 2-4 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksnis í Múlaþingi vegna þess að mig langar að leggja mitt af mörkum til sterks samfélags sem
byggir á ábyrgð, frelsi og raunhæfum lausnum.

Ég er með stúdentspróf og smáskiparéttindi og hef reynslu bæði af námi og verklegum störfum. Sú reynsla hefur kennt mér gildi vinnusemi og þess að fólk fái tækifæri til að bæta hag sinn með eigin framtaki.

Ég bý í Múlaþingi með unnustu minni og saman eigum við tvo drengi. Fjölskyldan er mér hjartans mál og hún mótar sýn mína á samfélagið. Ég vil samfélag sem styður fólk til sjálfshjálpar, þar sem einstaklingar fá raunhæf tækifæri til að standa á eigin fótum og bera ábyrgð á eigin lífi – með stuðningi þegar á þarf að halda, en ekki með kerfum sem halda fólki föstu.

Ég trúi því að hlutverk sveitarfélagsins sé að skapa skýra og trausta umgjörð: góða grunnþjónustu, ábyrg fjármál og einfaldar reglur sem gera fólki kleift að vinna, byggja upp og sjá fyrir fjölskyldum sínum. Þannig styrkjum við sjálfstæði fólks og samfélagið í heild.

Með framboði mínu vil ég vera rödd þeirra sem vilja axla ábyrgð, leggja sitt af mörkum og sjá hlutina ganga upp í raunveruleikanum. Ég bið því um stuðning ykkar í prófkjörinu og tækifærið til að vinna með ykkur að öflugu og sjálfstæðu Múlaþingi.