Framboð í kjörnefnd Varðar

Kosning í kjörnefnd Varðar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga fer fram miðvikudaginn 14. janúar nk. í Valhöll, Háaleitisbraut 1 milli kl. 10:00 og 18:00, en kosið er um átta menn. Eftirtalin eru í framboði, en kjósa skal að lágmarki sjö og að hámarki átta:

Bessí Jóhannsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Halldór Jón Theodórsson
Heimir Hannesson
Hildur Hauksdóttir
Jóna Lárusdóttir
Leifur Skúlason Kaldal
Magnús Geir Sigurgeirsson
Nanna Kristín Tryggvadóttir
Sandra Hlíf Ocares
Signý Pála Pálsdóttir
Sigríður Ragna Sigurðardóttir
Snædís Edwald Einarsdóttir
Úlfur Þór Andrason
Valgerður Sigurðardóttir
Þórdís Pálsdóttir
Þórir Garðarsson
Þorkell Sigurlaugsson
Þorsteinn Arnalds

Athugið að aðeins þeir sem eiga sæti í Verði, fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, geta tekið þátt í kosningunni, nánar á „mínum síðum“ á xd.is. Þátttakendur í kosningunni hafi skilríki meðferðis.

Yfirkjörstjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík