Eyþór Harðarson

Nú hefur fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum ákveðið fyrirkomulagið við val á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Prófkjör varð niðurstaðan og það verður ekki hægt að segja annað en að lýðræðið fær að njóta sín. Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fá það hlutverk að raða á listann og fagna ég þeirri leið.

Ég er Vestmannaeyingur og hef alla tíð búið í Eyjum fyrir utan tímabilið sem eldgosið stóð yfir og síðar námsárin í Þýskalandi þar sem ég lærði rafmagnstæknifræði. Hóf störf sem tæknimaður hjá Ísfélagi Vestmannaeyja áður en ég tók við starfi útgerðarstjóra 2003 sem ég sinni enn í dag.

Eiginkona mín er Laufey Grétarsdóttir og eigum við tvö uppkomin börn, Anítu Ýr og Grétar Þór, auk barnabarna.

Áhugamálin hafa lengst af snúist um íþróttir og þá ekki síst um handbolta og golf.  Var gjaldkeri í handknattleiksráði ÍBV. Tók þátt í starfi Ægisdyra sem kannaði möguleikann á jarðgöngum milli lands og Eyja. Sat einnig í stjórnum ÍBV íþróttafélags og Golfklúbbs Vestmannaeyja.

Ég hef verið oddviti okkar Sjálfstæðismanna á því kjörtímabili sem er að líða og lagt mig allan fram við að efna þau verkefni sem voru á stefnuskrá okkar Sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar eins og kostur er.

Sveitarfélög á landsbyggðinni eiga undir högg að sækja gagnvart ríkisvaldinu og er þar verk að vinna fyrir okkur. Rekstur grunn- og leikskóla og félagsþjónustan í heild sinni eru metnaðarmál okkar Sjálfstæðismanna. En grunnurinn að velferðinni er öflugt atvinnulíf og þar höfum við lagt okkar lóð á vogarskálar undanfarin ár. Einnig hefur það ekki farið fram hjá neinum Eyjamanni að traust og góð samvinna í sveitarstjórn mun skila okkur besta mannlífi til framtíðar.

Eftir nokkra umhugsun og þó nokkra hvatningu, þá hef ég ákveðið að bjóða mig fram til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningum og óska eftir stuðningi í 1.sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem fer fram föstudaginn 13.mars 2026.

Eyþór Harðarson