
Bráðum verða liðin fjögur ár síðan mér hlotnaðist sá heiður að hljóta kjör sem varamaður í sveitarstjórn Múlaþings. Þessi tími hefur í senn verið skemmtilegur og lærdómsríkur, en ég tel mig hafa öðlast dýrmæta innsýn í flest af mikilvægustu málefnum sveitarfélagsins. Til marks um það má nefna að síðar í mánuðinum mun ég sitja minn 20. sveitarstjórnarfund á kjörtímabilinu.
Ég vil að þessi reynsla nýtist áfram á næsta kjörtímabili og hef því ákveðið að gefa kost á mér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að gera okkar góða sveitarfélag enn betra og tel að ég geti það best sem aðalmaður í sveitarstjórn.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan mér var treyst til að verma 5. sæti á lista flokksins fyrir síðustu kosningar, þá 18 ára gömlum. Nú er ég 22 ára, reynslunni og raunar líka BA-gráðu í lögfræði ríkari, auk þess sem ML-gráðan er á leiðinni. Á meðan sumir sjá vandamál í öllum tækifærum sjá aðrir tækifæri í öllum vandamálum. Ég kýs að tilheyra síðarnefnda hópnum þar sem vandamálin í Múlaþingi eru óþrjótandi og þar með tækifærin líka, en þau þarf að grípa og ég bið um ykkar stuðning til þess í prófkjörinu.
