Berglind Harpa Svavarsdóttir

Ég gef kost á mér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi sem fer fram 28. febrúar 2026.

Undanfarin átta ár hef ég starfað á sveitarstjórnarvettvangi, sem oddviti á núverandi kjörtímabili og hef samhliða því sinnt formennsku í byggðaráði ásamt formennsku í Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Þá hef ég sem fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi tekið sjö sinnum sæti á Alþingi frá árinu 2021 og sinni því hlutverki áfram fram að næstu Alþingiskosningum. Sú reynsla hefur mótað mig og styrkt í starfi á sveitarstjórnarvettvangi.

Bættar samgöngur milli byggðakjarna skipta lykilmáli í okkar sveitarfélagi. Mikilvægt er að íbúar geti búið, starfað og sótt þjónustu innan sveitarfélagsins óháð staðsetningu allt árið um kring. Þannig verður svæðið í raun eitt atvinnu- og þjónustusvæði.

Góð þjónusta við íbúa og uppbygging henni tengd er annað lykilverkefni. Áframhaldandi ábyrgur rekstur sveitarfélagsins skiptir þar sköpum og þær breytingar sem tóku gildi á skipuriti sveitarfélagsins um áramótin styðja bæði við ábyrgan rekstur ásamt skilvirkari og öflugri stjórnsýslu.

Framundan eru mikilvæg verkefni og gríðarleg tækifæri. Ég vil halda áfram að vinna af krafti fyrir sveitarfélagið okkar og Austurland allt.

Ég sækist því eftir stuðningi ykkar í oddvitasætið í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi þann 28.febrúar 2026.