Ég, Ásgeir Elvar Garðarsson býð mig fram í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Ég er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Reykjavíkur og starfa sem framkvæmdastjóri Bílaleigunnar Geysis. Ég er fæddur og uppalinn í Reykjanesbæ og bý í Keflavík ásamt eiginkonu minni Gígju Sigríði Guðjónsdóttur. Saman eigum við tvö börn á leik- og grunnskólaaldri og þar af leiðandi hef ég upplifað frá fyrstu hendi þau endurteknu vandræði sem Reykjanesbær hefur átt í skólamálum sínum. Með breyttum áherslum eru það hins vegar verkefni sem hefur verið sýnt fram á áður að vel megi leysa.
Í sveitastjórnarkosningunum 2026 fá sveitastjórnarmenn tækifæri til að endurnýja umboð sitt og nýjum frambjóðendum gefst færi á að koma að borðinu með nýja sýn og breyttar áherslur.
Ég fell þar undir síðari hópinn en með framboði mínu boða ég nýja og breytta nálgun á stjórnmálin í Reykjanesbæ. Ég bý ekki yfir áralangri reynslu úr stjórnmálum, þótt ég hafi fylgst mjög vel með og tekið virkan þátt í samfélaginu mínu. Ný nálgun er nauðsynleg fyrir sveitastjórnarstigið.
Ég býð mig ekki aðeins fram fyrir flokkinn í bænum heldur fólkið í bænum og hvet ég því alla sem hafa áhuga á bæjarmálunum að slá á þráðinn til mín.
Virðingarfyllst,
Ásgeir Elvar Garðarsson.
