Andrea Sigurðardóttir er formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík ásamt því að vera formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur um langt árabil gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Andrea er með mastersgráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hún á að baki áralangan feril úr atvinnulífinu en hefur undanfarin ár að mestu starfað sem blaðamaður, í dag á Morgunblaðinu en áður á Viðskiptablaðinu.
Viðtöl:
Inga Jóna Þórðardóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur - 23. júlí 2024.
Sólveig Pétursdóttir fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forseti Alþingis - 20. ágúst 2024.