2. mars 2026

Davíð Oddsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra er látinn

Davíð Oddsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra og borgarstjóri er látinn 78 ára að aldri.

Óhætt er að segja að með Davíð sé genginn einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum Íslandssögunnar. Hann sat í borgarstjórn Reykjavíkur frá 1974-1994, þar af borgarstjóri frá 1982-1991. Undir hans forystu náði flokkurinn 60,44% í borgarstjórnarkosningunum árið 1990 og fékk 10 borgarfulltrúa af 15.

Davíð var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi árið 1991 og hafði þá áður verið varaformaður síðan 1989. Hann var formaður Sjálfstæðisflokksins óslitið til ársins 2005.

Árið 1991 var Davíð kjörinn til setu á Alþingi og varð forsætisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Árið 1995 myndaði Sjálfstæðisflokkurinn undir hans forystu ríkisstjórn með Framsóknarflokknum. Það stjórnarsamstarf var endurnýjað árið 1999 og aftur árið 2003. Árið 2004 lét Davíð af embætti forsætisráðherra og tók við embætti utanríkisráðherra í rúmt ár þar til hann lét af þingmennsku og hætti þátttöku í stjórnmálum árið 2005. Enginn hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands lengur en Davíð.

Davíð var skipaður formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands árið 2005 og gegndi því embætti til ársins 2009, en það sama ár var hann ráðinn annar af ritstjórum Morgunblaðsins og gegndi því starfi til æviloka.

Undir forystu Davíðs sem borgarstjóri urðu miklar framfarir í Reykjavík og naut Davíð mikilla vinsælda. Öflugt uppbyggingarskeið átti sér stað og fjárhagur borgarinnar undir hans forystu var traustur.

Í forsætisráðherratíð Davíðs leiddi hann þjóðina út úr tímabili óðaverðbólgu og erfiðleika á áttunda og níunda áratugnum inn í eitt mesta velsældar- og vaxtarskeið þjóðarinnar.

Reynsla Davíðs kom sér afar vel í Seðlabankanum þegar bankahrunið skall á. Undir hans forystu í bankastjórn Seðlabankans var lagður grunnur að viðspyrnu Íslands upp úr þeim ólgusjó sem þjóðin stóð frammi fyrir.

Davíð lauk stúdentsprófi frá MR. Hann lagði um tíma stund á leiklistarnám en lauk prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir bankaritari. Eftirlifandi eiginkona hans er Ástríður Thorarensen. Sonur Davíðs og Ástríðar er Þorsteinn og kona hans er Heiðrún Geirsdóttir. Eiga þau tvær dætur.

Davíð setti sannarlega svip á íslenskt þjóðfélag. Hann var réttsýnn, greindur, hreinskiptinn, fylginn sér og orðfimur með meiru. Það var líflegt í kringum hann enda hafði Davíð góðan húmor. Hann naut virðingar bæði meðal samherja og pólitískra andstæðinga.

Við fráfall Davíðs sendir Sjálfstæðisflokkurinn innilegar samúðarkveðjur til eftirlifandi eiginkonu, sonar, tengdadóttur, barnabarna og annarra ástvina. Blessuð sé minning Davíðs Oddssonar.