Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar var kynntur í troðfullum sal af sjálfstæðisfólki í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll síðdegis í dag eftir að listinn hafði fyrr um daginn verið samþykktur á fundi Varðar, fulltrúaráðsins í Reykjavík. Gríðarleg stemning var í salnum þegar Hildur Björnsdóttir oddviti listans og borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kynnti frambjóðendur inn á svið.
Í öðru sæti er Bjarni Eggerts Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs, fyrrverandi knattspyrnumaður og þjálfari og í því þriðja er Brynjar Níelsson, varaþingmaður flokksins og lögfræðingur.
Í fjórða sætinu er Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og á eftir henni í fimmta sæti er Rúnar Freyr Gíslason leikari.
70 prósent kalli eftir breytingum
Eftir frambjóðendakynningu kynnti Hildur nýja skoðanakönnun sem sýnir að yfir 70% borgarbúa kalla eftir breytingum í vor.
Hildur segir að skilaboðin séu skýr, borgarbúar vilji breytingar. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn eina trúverðuga aflið til að hrinda af stað þeim breytingum sem borgarbúar kalli eftir.
„Þessi niðurstaða staðfestir það sem við finnum á hverjum degi í samtölum okkar við borgarbúa; fólk vill nýja forystu, skýrari stefnu og árangur í þeim málum sem varða daglegt líf þess,“ segir Hildur.
Listann í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
1. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi
2. Bjarni Eggerts Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs
3. Brynjar Þór Níelsson, lögfræðingur
4. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi
5. Rúnar Freyr Gíslason, leikari
6. Guðný María Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur
7. Albert Guðmundsson, lögfræðingur og formaður Varðar
8. Bjarni Fritzson, rithöfundur og bókaútgefandi
9. Sigrún Ásta Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
10. Björn Gíslason, borgarfulltrúi
11. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi
12. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur
13. Helga Margrét Marzellíusardóttir, tónlistarmaður
14. Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur og frumkvöðull
15. Daníel Hjörvar Guðmundsson, verslunarmaður og lögfræðingur
16. Elínborg Ásdís Árnadóttir, kennari
17. Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson, viðskiptastjóri
18. Már Másson, ráðgjafi og eigandi hjá Athygli
19. Katla Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri
20. Kristjón Jónsson, byggingatæknifræðingur og MBA
21. Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur
22. Elías Blöndal Guðjónsson, verslunarmaður
23. Arna Arnardóttir, gullsmiður
24. Luca Kostic, knattspyrnuþjálfari
25. Auður Jónsdóttir, viðskiptafræðingur og hagfræðingur
26. Eva Dögg M Sigurgeirsdóttir, viðskipta- og markaðsfræðingur
27. Stefán Karl Snorraon, mannauðsstjóri
28. Hlíf Sturludóttir, framkvæmdastjóri
29. Atli Guðjónsson, fagstjóri landupplýsinga
30. Tómas Orri Tryggvason, nemi
31. Kolbrún Ólafsdóttir, fyrrum sérhæfður leikskólastarfsmaður
32. Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur
33. Anna Fríða Ingvarsdóttir, nemi
34. Logi Stefánsson, verslunarmaður
35. Georg Ingi Kulp, tónlistarmaður og rafvirkjanemi
36. Ingibjörg H. Sverrisdóttir, varaformaður SES
37. Alda María Þórðardóttir, formaður Heimdallar
38. Guðmundur Snorrason, endurskoðandi og formaður félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi
39. Erna Birgisdóttir, laganemi
40. Eydís Helga Viðarsdóttir, sagnfræðinemi
41. Berta Biering, fv. skrifstofufulltrúi
42. Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri og formaður félags sjálfstæðismanna á Kjalarnesi
43. Gunnar Örn Ólafsson, eftirlaunaþegi
44. Gestur Ólafsson, arkítekt og skipulagsfræðingur
45. Svava Johansen, kaupmaður
46. Ragnar Jónasson, rithöfundur

