Berglind Harpa Svavarsdóttir hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi var efst í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi með 219 atkvæði í 1. sæti eftir að úrslit lágu fyrir í kvöld. Hún hefur verið oddviti listans síðan 2022.
Í öðru sæti varð Þórhildur Katrín Stefánsdóttir lögfræðingur og varaformaður Landssambands hestamannafélaga með 147 atkvæði í 1. - 2. sæti. Hún kemur ný inn á listann.
Í þriðja sæti varð Ívar Karl Hafliðason framkvæmdastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi með 228 atkvæði í 1. - 3. sæti.
Í fjórða sæti varð Einar Freyr Guðmundsson lögfræðinemi og sveitarstjórnarfulltrúi með 163 atkvæði í 1. - 4. sæti.
Alls tóku áttu frambjóðendur þátt í prófkjörinu. Kosið var um 4 efstu sæti listans. 324 kusu í prófkjörinu. Ógildir seðlar voru 10. Kjörsókn var 51,1%.

