Umbót í Reykjanesbæ hefur tekið þá ákvörðun að leggja niður framboðið og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og mun því ekki bjóða fram aftur.
Umbót hefur á yfirstandandi kjörtímabili átt einn bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Margréti Þórarinsdóttur. Þar áður sat hún sem oddviti Miðflokksins í bæjarstjórn 2018-2022. Með henni ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn nefndarmenn Umbótar, þau Gunnar Felix Rúnarsson, Jón Már Sverrisson og Harpa Sævarsdóttir.
„Það er skýrt ákall um breytingar í Reykjanesbæ. Til að þær verði að veruleika þurfum við að sameina kraftana og stilla saman strengi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nýlega kosið sér öflugan oddvita, Vilhjálm Árnason, í fjölmennasta prófkjöri í sögu Reykjanesbæjar. Málefnaáherslur Umbótar og Sjálfstæðisflokksins fara saman í flestum grundvallaratriðum. Við teljum því rétt að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í þeirri viðleitni að ná fram þeim breytingum sem bæjarbúar kalla eftir. Bæjarbúar í Reykjanesbæ eiga skilið öfluga forystu og skýra sýn,“ segir Margrét Þórarinsdóttir.
Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót hafa starfað saman í minnihluta bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili. Samstarfið hefur einkennst af málefnalegri og traustri samvinnu og markvissu aðhaldi gagnvart meirihlutanum. Flokkarnir hafa ítrekað lagt fram sameiginlegar tillögur og sýnt í verki að þeir deila skýrri framtíðarsýn fyrir Reykjanesbæ. Áherslur þeirra fara saman á lykilsviðum, svo sem ábyrgri fjármálastjórn, hertri stefnu í útlendingamálum, öflugri mennta- og atvinnuuppbyggingu, skynsemi í skipulagsmálum, meiri stuðning við íþróttahreyfinguna og lægri álögum á heimili og fyrirtæki.
Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, fagnar ákvörðuninni.
„Það er mikill liðsstyrkur í því að fá Umbót og þeirra öfluga fólk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er skýrt merki um að breið fylking er að myndast um breytingar í Reykjanesbæ. Kosningarnar í vor eru meðal þeirra mikilvægustu í langan tíma. Við ætlum að tala upp bæinn okkar, styðja við fjölskyldur og fyrirtæki og tryggja að grunnþjónustan sé í lagi. Sveitarfélagið á ekki að gera allt, en það sem það tekur sér fyrir hendur á það að gera vel og af ábyrgð,“ segir Vilhjálmur.
Í kvöld verður tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ lögð fyrir fulltrúaráðið á fundi á Hótel Keflavík klukkan 19:30.
Þar sem Umbót hefur ákveðið að leggja niður framboð sitt og mun ekki bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum er, með vísan til 4. gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins, ekkert því til fyrirstöðu að félagar og trúnaðarmenn Umbótar gangi til liðs við flokkinn, enda gegni þeir hvorki trúnaðarstörfum né sitji á framboðslista annars stjórnmálaflokks.
Sjálfstæðisflokkurinn býður Umbót og þeirra öfluga fólki hjartanlega velkomið í flokkinn og fagnar þessari ákvörðun sem styrkir breiða samstöðu um breytingar í Reykjanesbæ.

