Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar árið 2026 voru afhent við hátíðlega athöfn í bókastofu Valhallar miðvikudagskvöldið 25. febrúar.
Að vana voru verðlaunin veitt í tveimur verðlaunaflokkum, flokki lögaðila og flokki einstaklinga, til aðila sem hafa lagt sitt lóð á vogarskálarnar svo um munar í þágu frelsisins.
Sigurvegarinn í verðlaunaflokki lögaðila var Kópavogsbær, fyrir Kópavogsmódelið í leikskólamálum, sem hefur beislaði valfrelsið til að auka velferð og bæta þjónustu í leikskólamálum í Kópavogi. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, veitti frelsisverðlaununum viðtöku fyrir hönd Kópavogsbæjar.
Sigurvegarinn í verðlaunaflokki einstaklinga var Ottó B. Arnar, fyrir framlag sitt til frjálsrar fjölmiðlunar og ljósvakamiðlunar á Íslandi. Í ár eru hundrað ár síðan að hann stóð fyrir fyrstu útvarpssendingunni á Íslandi árið 1926. Sama ár stofnaði hann fyrstu íslensku útvarpsstöðina: H.f. Útvarp. Ríkið brá fæti fyrir útvarpsstöðina, framlengdi ekki útvarpsleyfi hennar og stofnaði í staðinn Ríkisútvarpið. H.f. Útvarp var fyrsta einkarekna útvarpsstöð Íslandssögunnar, en starfsemi einkarekinna útvarpsstöðva var síðan ólögleg fram til ársins 1985, þegar einokunarrétti ríkisins á ljósvakamiðlun var loks aflétt. Birgir Arnar Ottósson, sonur Ottós B. Arnars, veitti frelsisverðlaununum viðtöku fyrir föður sinn heitinn.
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna þakkar gestum fyrir komuna og þakkar verðlaunahöfum fyrir framlög þeirra til frelsisins á Íslandi.





