23. febrúar 2026

Fundir með þingmönnum í kjördæmaviku

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins verða á opnum fundum víða um land í yfirstandandi viku sem er kjördæmavika á Alþingi.

Dagskránna má finna hér fyrir neðan með fyrirvara um að fleiri fundir bætist við og verður dagskráin þá uppfærð. Þá munu þingmenn einnig heimsækja vinnustaði og sækja fundi með kjörnum fulltrúum flokksins víða um land í vikunni.

Suðurkjördæmi

  • Sunnudaginn 22. febrúar - opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni kl. 17:00 á Hótel Dyrhólaey í Mýrdalshreppi.
  • Sunnudaginn 22. febrúar - opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni kl. 20:30 á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri. 
  • Mánudagur 23. febrúar – opinn fundur í Safnaðarheimilinu á Hellu kl. 20:00 með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni.
  • Miðvikudagur 25. febrúar – opinn fundur kl. 17:00 að Unubakka 3, félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Þorlákshöfn, með Guðrúnu Hafsteinsdóttur.
  • Miðvikudagur 25. febrúar – opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur kl. 20:00 Hafnargötu 10, Þorbjarnarhúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd.
  • Fimmtudagur 26. febrúar – opinn fundur kl. 20:00 með Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur í Sjálfstæðishúsinu í Hveragerði.

Norðausturkjördæmi

  • Mánudaginn 23. febrúar – opinn fundur með Jens Garðari Helgasyni kl. 17:00 í Golfskálanum á Húsavík.
  • Fimmtudaginn 26. febrúar - opinn fundur með Jens Garðari Helgasyni kl. 17:00 í Íhaldinu, félagsheimili Sjálfstæðismanna á Egilsstöðum.

Norðvesturkjördæmi

  • Mánudagur 23. febrúar – opinn fundur í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði kl. 17:00 með Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni.
  • Þriðjudagur 24. febrúar – opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni í Stillholti 23, Akranesi kl. 12:00. Súpa í boði.
  • Þriðjudagur 24. febrúar – opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni í Freyjulundi, Stykkishólmi kl. 17:00
  • Þriðjudagur 24. febrúar – opinn fundur með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni í húsnæði Dalíu í Búðardal kl. 20:00
  • Miðvikudaginn 25. febrúar - opinn fundur með Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni í Safnaðarheimilinu á Hvammstanga kl. 17:00.
  • Fimmtudaginn 26. febrúar – „happy hour“ með Ólafi Adolfssyni og Jóni Gunnarssyni á Kaffi Krók á Sauðárkróki kl. 18:00.

Höfuðborgarsvæðið

  • Laugardaginn 28. febrúar - framboðislisti Sjálfstæðisflokksins kynntur kl. 16:30 í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll.