21. febrúar 2026

Fulltrúaráðsfundur Varðar 28. febrúar

Boðað er til fundar fulltrúaráðssins laugardaginn 28. febrúar kl. 15:00. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, en fyrir fundinum liggur tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem kemur nú til afgreiðslu fulltrúaráðsins.

Að loknum fundi kjördæmisráðsins verður framboðslistinn kynntur með viðhöfn og þar gefst sjálfstæðismönnum færi á því að kynnast frambjóðendum. Listakynningin hefst kl. 16:30 og fer fram á sama stað, í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll.

Athugið að aðeins meðlimir í fulltrúaráðinu geta sótt fund fulltrúaráðsins kl. 15:00, en kynning framboðslistans er öllum opin. Aðild að fulltrúaráðinu má sjá á Mínum síðum á xd.is.

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík