14. febrúar 2026

Ragnar sjálfkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð

Sex efstu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð kom saman til fundar í dag 14. febrúar í Randulfssjóhúsi á Eskifirði til að raða í sex efstu sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Í framboði voru 11 einstaklingar í sex efstu sætin.

Ragnar Sigurðsson er sjálfkjörinn oddviti listans. Í öðru sæti er Kristinn Þór Jónasson, þriðja sæti er Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, fjórða sæti er Húnbogi Sólon Gunnþórsson, fimmta sæti er Tanja Tómasdóttir og í sjötta sæti er Friðrik Júlíus Jósefsson.

Sex efstu sæti framboðslistans:

  1. Ragnar Sigurðsson
  2. Kristinn Þór Jónasson
  3. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
  4. Húnbogi Sólon Gunnþórsson
  5. Tanja Tómasdóttir
  6. Friðrik Júlíus Jósefsson

Ragnar Sigurðsson segir að listinn sé samblanda af reynslu og nýliðun sem veitir okkur kraft í komandi kosningabaráttu. „Ég er fullur tilhlökkunar að starfa með þessum sterka og öfluga hópi fyrir íbúa Fjarðabyggðar“, segir hann.

Laugardaginn 21. febrúar mun fullskipaður listi vera lagður fyrir fulltrúaráð til samþykktar.