13. febrúar 2026

Vörður fagnar 100 ára afmæli í dag

Í dag fagnar Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, 100 ára afmæli, en Vörður var stofnaður 13. febrúar árið 1926 sem Landsmálafélagið Vörður. Í aldreifingarútgáfu Morgunblaðsins í gær, fimmtudaginn 12. febrúar, birtist heilsíðuumfjöllun um afmælisrit Varðar, en þar er fjallað um tilurð Varðar og upphafsár sem rituð er af Birni Jóni Bragasyni, sagnfræðingi.

Aldarafmælisfögnuður í Valhöll 7. mars

Kjörnefnd Varðar vinnur nú hörðum höndum að mótun framboðslista vegna borgarstjórnarkosninga í vor, en hann mun liggja fyrir á allra næstu vikum. Í kjölfarið blæs Vörður til 100 ára afmælishátíðar sem markar upphafið að endurreisn Reykjavíkur undir forystu Sjálfstæðisflokksins.

Hátíðarhöldin fara fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, laugardaginn 7. mars, milli kl. 15:00 og 17:30. 

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður heiðursgestur samkomunnar auk þess sem að Björn Jón Bragason, sagnfræðingur kynnir afmælisritið Vörður í 100 ár. Þá mun Hildur Björnsdóttir, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins einnig ávarpa samkomuna.

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur, en við biðjum ykkur að taka daginn frá. Allir sjálfstæðismenn eru velkomnir í Valhöll til að fagna afmælinu.

Afmælisrit Varðar - „Kjölfesta íslenskra stjórnmála“

Í umfjöllun Morgunblaðsins um ritið kemur meðal annars fram að Verði hafi í upphafi verið sett þau stefnumið að byggja upp þjóðlega og víðsýna framfarastefnu, styðja og efla atvinnulíf landsmanna á grundvelli einstaklingsframtaks. Greinin ber fyrirsögnina: Kjölfesta íslenskra stjórnmála, en þar kemur meðal annars fram að Vörður hafi frá upphafi haldið úti líflegu fundarstarfi og á sinn hátt orðið kveikjan að ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins sem varð til þess að Heimdallur, félag ungra íhaldsmanna í Reykjavík var stofnað, rúmu ári eftir stofnun Varðar.

Skipulag Varðar hafi að lokum orðið fyrirmyndin að skipulagi Sjálfstæðisflokksins um land allt. Þá hafi Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík, með Vörð í broddi fylkingar, staðið að byggingu Sjálfstæðishússins við Austurvöll, svo dæmi sé tekið. Ljóst má þykja að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki orðið að því afli sem hann varð í stjórnmálasögu 20. aldarinnar, hefði hann ekki notið þess krafts sem leyndist í Verði.

Öllum sjálfstæðismönnum er frjálst að skrá sig á tabula gratulatoria afmælisritsins með því að styrkja útgáfuna um 4.500 kr., en innifalið er ritið sjálft auk þess sem að nafn viðkomandi birtist á þakkarskrá ritsins. Enn er hægt að skrá sig og framlengist frestur til sunnudagsins 15. febrúar.

Albert Guðmundsson, formaður Varðar