Skólamál, félagsmál, íþróttir og atvinnumál eru reykvískum ungmennum ofarlega í huga að því er fram kom á sameiginlegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna sl. þriðjudag.
Á fundinum komu fram margar góðar ábendingar um það, sem betur má fara í málefnum ungmenna. Er dýrmætt fyrir borgarstjórn að funda reglulega með Reykjavíkurráðinu og heyra sjónarmið þess milliliðalaust.
Ungliðarnir fluttu átta tillögur um margvísleg málefni, sem teknar verða til frekari umfjöllunar og afgreiðslu í ráðum borgarinnar.
Áhyggjur af auknu ofbeldi
Skólamál voru einnig áberandi á fundinum. Fulltrúi ungmennaráðs Breiðholts lagði til að mótuð verði gervigreindarstefna í skólastarfi. Fulltrúi ungmennaráðs Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða lagði til að Reykjavíkurborg veiti ungmennum á aldrinum 13-18 ára árlegan styrk til bókakaupa.
Fulltrúi ungmennaráðs Kjalarness leggur til að tekin verði upp kennsla í sjálfsvörn fyrir nemendur á unglingastigi í grunnskólum Reykjavíkur. Lýsti fulltrúinn yfir áhyggjum vegna aukins ofbeldis meðal ungs fólks og vaxandi vopnaburðar.
Skiljanlegt er að unglingar vilji láta rödd sína heyrast í þeim ráðum Reykjavíkurborgar, sem helst fjalla um málefni þeirra. Fulltrúi í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða leggur til að Reykjavíkurráð ungmenna fái að tilnefna áheyrnarfulltrúa í fleiri ráð en nú er, þ.e. velferðarráð, umhverfis- og skipulagsráð og menningar- og íþróttaráð.
Hlutastörf á vegum Vinnuskóla Reykjavíkur munu standa unglingum til boða yfir vetrartímann nái tillaga fulltrúa í ungmennaráði Grafarvogs fram að ganga. Hugmyndin er sú að unglingum verði boðin slík hlutastörf í frístundaheimilum, leikskólum, félagsmiðstöðvum og við önnur tilfallandi störf.
Kjaraskerðingin í Vinnuskólanum
Á árunum 2022-2025 hækkaði landsvísitala launa um 31,6% en á sama tíma hækkuðu laun í Vinnuskólanum aðeins um 14,5% að meðaltali. Laun 8. bekkjar hafa hækkað um 8%, 9. bekkjar um 18% og 10. bekkjar um 17,6% á tímabilinu. Fyrirhugað er að laun unglinganna hækki aðeins um 3,5% milli áranna 2025-2026 þrátt fyrir að ársverðbólga mælist nú 5,2%. Kjaraskerðingin er augljós og hún byggist á pólitískri ákvörðun vinstri flokkanna í borgarstjórn. Er afar ósanngjarnt að fyrsta reynsla margra unglinga af vinnumarkaði, felist í því að verða fyrir slíku óréttlæti.
Skuldir í dag eru skattur á morgun
Benti ég á að það væri eitt helsta hagsmunamál ungu kynslóðarinnar að hið opinbera kæmi rekstri sínum í jafnvægi og hætti að hlaða upp skuldum. Það segir sig sjálft að Reykjavíkurborg getur ekki endalaust tekið lán til að fjármagna rekstur og fjárfestingar. Það kemur að skuldadögum og væntanlega kemur það í hlut næstu kynslóðar að greiða upp gífurleg lán, sem Reykjavíkurborg hefur tekið á undanförnum árum. Unga fólkið er skattgreiðendur framtíðarinnar og það á því mikið undir því komið að látið verði af glórulausri skuldasöfnun hins opinbera.

