Um síðustu helgi rann út framboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi sem verður þann 28. febrúar n.k. Alls buðu 8 einstaklingar sig fram í sætin fjögur sem raðað verður í með prófkjörinu. Röðun á framboðslista var ákveðin í gær á fundi kjörnefndar með öllum frambjóðendum, og munu nöfn þeirra birtast á atkvæðaseðlinum í þessari röð:
- Þórhildur Katrín Stefánsdóttir
- Berglind Harpa Svavarsdóttir
- Þórhallur Borgarsson
- Einar Freyr Guðmundsson
- Guðný Lára Guðrúnardóttir
- Ívar Karl Hafliðason
- Grímur Orri Sölvason
- Sylvía Ösp Jónsdóttir
Hilmar Gunnlaugsson formaður kjörnefndar segir kjörnefndina vera yfir sig ánægða með þátttökuna, þátttakendur komi úr öllu sveitarfélaginu, frábær blanda af reynslu og ferskleika og heilt yfir mjög spennandi valkostir.
Þá segir Hilmar að í vinnu kjörnefndar hafi það verið sérstaklega ánægjulegt hve margir hafi lýst yfir vilja til að taka þátt í starfi framboðsins, þó sumir hafi kosið að stíga ekki það skref að taka þátt í framboði.
„Þetta er ekkert annað en frábær þátttaka af öflugum einstaklingum sem eru tilbúin til að vinna samfélaginu heilt. Við höfum lagt mikla áherslu á það í samtölum við áhugasama einstaklinga að þátttaka í framboði snúist ekki eingöngu um kosningabaráttuna heldur langhlaupið að starfa af krafti í liðsheild til næstu fjögurra ára“ segir Hilmar.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um frambjóðendur hér:
Prófkjör Múlaþing 28. febrúar - Sjálfstæðisflokkurinn
Stefnt er að sameiginlegum fundum frambjóðenda um allt sveitarfélagið á næstu vikum fram að prófkjöri. Þá er ráðgert að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjist í næstu viku, en hún verður nánar auglýst á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is og fascebook síðu xD í Múlaþingi.

