7. febrúar 2026

Þór áfram oddviti D-listans á Seltjarnarnesi

Þór Sigurgeirsson var í dag endurkjörinn oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi eftir að úrslit prófkjörs lágu fyrir. Hlaut Þór alls 566 atkvæði í 1. sæti eða 71,4% atkvæða. Hann hefur verið oddviti D-listans síðan 2022.

Kosið var um fimm efstu sæti framboðslistans.

Í öðru sæti er Elísabet Ingunn Einarsdóttir með 293 atkvæði  í 1. – 2. sæti eða 37.0% atkvæða.

Í þriðja sæti er Svana Helen Björnsdóttir með 276 atkvæði í 1. - 3. sæti eða 34.8% atkvæða.

Í fjórða sæti er Magnús Benediktsson með 395 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 49,9% atkvæða.

Í fimmta sæti er Björn Jóhannesson með 473 atkvæði í 1.-5. sæti eða 59,7% atkvæða .

Alls voru 792 atkvæði greidd,  þar af voru auðir og ógildir seðlar 25 talsins. Kjörsókn var 58,3%.