Orri Björnsson er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði eftir að úrslit í prófkjöri flokksins lágu fyrir í kvöld. Hlaut Orri 754 atkvæði í 1. sæti eða 51,6%.
Kosið var um sex efstu sæti listans og tóku 15 frambjóðendur þátt í prófkjörinu
Í öðru sæti er Kristín María Thoroddsen með 670 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 45,9%
Í þriðja sæti er Viktor Pétur Finnsson með 673 atkvæði í 1. – 3. sæti eða 46,1%.
Í fjórða sæti er Guðbjörg Oddný Jónasdóttir með 749 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 51,3%.
Í fimmta sæti er Kristinn Andersen með 635 atkvæði í 1. – 5. sæti eða 43,5%
Í sjötta sæti er Helga Björg Loftsdóttir með 676 atkvæði í 1. – 6. sæti eða 46,3%.
Alls greiddu 1.502 atkvæði í prófkjörinu. Gild atkvæði voru 1.461 og 41 seðlar voru auðir og ógildir.

