Berglind Ósk Guðmundsdóttir var kjörin oddviti D-listans á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á röðunarfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í dag. Hlaut Berglind Ósk 61 atkvæði en Þórhallur Jónsson sem einnig gaf kost á sér í 1. sæti hlaut 55 atkvæði.
Á fundinum var kosið um efstu fjögur sæti framboðslistans en kjörnefnd mun gera tillögu að fullskipuðum lista á næstu vikum.
Í öðru sæti listans er Heimir Örn Árnason fráfarandi oddviti D-listans. Hlaut Heimir Örn 74 atkvæði en Þórhallur Jónsson sem einnig sóttist eftir 2. sæti hlaut 45 atkvæði.
Í þriðja sæti listans er er Arna Rut Gunnarsdóttir. Hlaut hún 60 atkvæði en Þorsteinn Kristjánsson sem einnig gaf kost á sér í 3. sæti hlaut 56 atkvæði.
Í fjórða sæti listans er Þórhallur Harðarson. Hlaut hann 69 atkvæði en Vilhjálmur Árnason sem einnig sóttist eftir 4. sæti hlaut 10 atkvæði.

