6. febrúar 2026

Stjórnsýslufúsk vegna Félagsbústaða

Félagsbústaðir hf. eru stærsta fasteignafélag landsins í íbúðum talið. Félagið leigir út rúmlega þrjú þúsund félagslegar íbúðir og gegnir því afar mikilvægu hlutverki á fasteignamarkaði.

Þar sem Félagsbústaðir eru að fullu í eigu Reykjavíkurborgar, ber borgarstjórn ábyrgð á því að vel sé staðið að rekstri félagsins og að borgarbúar séu upplýstir um stöðu þess. Á því hefur hins vegar orðið misbrestur.

Ljóst er að fjármagnsskipan Félagsbústaða er ósjálfbær. Matsbreyting fjárfestingareigna hefur verið færð sem hagnaður í bókhaldi félagsins til að fegra rekstrarreikning þess. Slík matsbreyting er reiknuð stærð, sem skilar ekki raunverulegum tekjum til rekstrarins. Án hennar nemur tap félagsins mörgum milljörðum króna á undanförnum árum.

Athugasemdir eftirlitsnefndar

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur gert athugasemdir við að Reykjavíkurborg skilgreini félagslegt húsnæði Félagsbústaða sem fjárfestingareign í ársreikningum sínum og bókfæri það á markaðsverði en ekki kostnaðarverði. Munurinn á kostnaðarverði og markaðsvirði fasteignasafnsins er yfir 100 milljarðar króna.

Allt kjörtímabilið hefur vinstri meirihlutinn í borgarstjórn vikið sér undan því að taka á fjárhagsvandræðum Félagsbústaða. Rétt fyrir kosningar, er síðan rokið til. Á fundi borgarstjórnar 20. janúar sl. samþykkti vinstri meirihlutinn í borgarstjórn aðgerðir um fjárhagsmálefni Félagsbústaða. Meðal annars var samþykkt að leggja félaginu til eiginfjárframlög upp á samtals 2,4 milljarða króna og og skuldbinda þannig borgarsjóð út allt næsta kjörtímabil. Fyrsta greiðslan, 300 milljónir, er fjármögnuð með því að lækka framkvæmdafé til skólabygginga um 200 milljónir og fé til frágangs Vogabyggðar um 100 milljónir.

Lykilgögnum haldið leyndum

Á kjörtímabilinu hafa þrjár sérfræðiskýrslur verið skrifaðar um rekstur og fjárfestingargetu Félagsbústaða. Fyrsta skýrslan lá fyrir í ágúst 2023, næsta í marz 2024 og hin þriðja í október 2025.

Skýrslurnar hafa allar verið vandaðar og varpað ljósi á að fjármagnsskipan Félagsbústaða og uppbyggingarstefna er ósjálfbær. Endurskoða þurfi viðskiptalíkan félagsins og auka tekjur þess með einhverjum hætti.

Vinstri meirihlutinn hefur lagt ríka áherslu á að strangur trúnaður ríki um áðurnefndar skýrslur og að ekki megi því fjalla um þær á opinberum vettvangi. Hefur tillögum undirritaðs um að þeim trúnaði verði aflétt, ýmist verið frestað eða þær ekki teknar til afgreiðslu. Slík leynd er óeðlileg enda ættu borgarfulltrúar og eigendur þessa borgarfyrirtækis, þ.e. almenningur í Reykjavík, að vera vel upplýstir um stöðu þess og hvaða leiðir séu færar til að koma fjárhagnum á réttan kjöl.

Borgarfulltrúar ekki upplýstir

Trúnaði var ekki aflétt af umræddum skýrslum fyrir umræddan borgarstjórnarfund í janúar og gátu almennir borgarfulltrúar því ekki kynnt sér efni þeirra. Er afar óeðlilegt að borgarfulltrúum hafi ekki verið gefinn kostur á að kynna sér þessi þýðingarmiklu gögn málsins og þannig ekki verið upplýstir nægilega, áður en þeim var gert að taka ákvörðun í máli, sem skuldbatt borgarsjóð um milljarða króna.

Ekkert réttlætir að slíkum skýrslum, sem veita víðtækar upplýsingar um þrönga fjárhagsstöðu borgarfyrirtækis sé haldið frá kjörnum fulltrúum og almenningi. Slík leynd kynni að vera réttlætanleg ef í slíkum skýrslum væru upplýsingar, sem lytu reglum kauphallar um birtingu eða um viðkvæm persónuleg málefni. Hvorugu er til að dreifa í áðurnefndum skýrslum. Með því að krefjast trúnaðar um efni þeirra hefur vinstri meirihlutinn leitast við að koma í veg fyrir óþægilegar umræður um fjárhagsstöðu Félagsbústaða og hvaða leiðir séu færar til úrbóta.

Eftir harða gagnrýni hefur vinstri meirihlutinn nú loks ákveðið að aflétta leynd af þeirri skýrslu um fjárhagsmálefni Félagsbústaða, sem lá fyrir í október sl., enda hafa fjölmiðlar nú þegar birt fréttir upp úr henni. Eftir stendur að trúnaði hefur ekki enn verið aflétt af upplýsandi skýrslum, sem skrifaðar voru fyrr á kjörtímabilinu um fjárhagsmálefni félagsins.

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Greinin birtist í Morgunblaðinu 5. febrúar 2026.