
Kæru sjálfstæðismenn í Reykjavík.
Málfundafélagið Óðinn heldur sinn fyrsta fund á nýju ári, miðvikudaginn 4. febrúar kl. 17.15, í bókastofu Valhallar.
Nú í aðdraganda borgarstjórnarkosninga, sem haldnar verða í vor, vill stjórn Málfundafélagsins Óðins bjóða upp á opið samtal um þær áskoranir sem Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir. Þessi fundur mun beina sjónum að fyrirtækjarekstri og ræða hvaða breytingar eru nauðsynlegar til farsældar fyrir atvinnulíf og uppbyggingu í Reykjavík og til þess fáum við góða gesti.
Í pallborði munu sitja Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Birna Ósk Einarsdóttir forstjóri Húsasmiðjunnar, Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Reykvíkinga og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG Verk.
Heiðursgestur fundar verður formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir.
Húsið opnar kl. 16.45 með ljúfum lifandi tónum. Birna Hafstein formaður Óðins tekur á móti fólki og fundur hefst formlega kl. 17.15.
Hlýjar kveðjur,
f.h. stjórnar Málfundafélagsins Óðins
Birna Hafstein formaður

