Hilmar Gunnarsson ritstjóri er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ eftir að niðurstöður úr prófkjöri flokksins voru birtar nú í kvöld. Hlaut Hilmar 799 atkvæði í 1. sæti eða 91,9% atkvæða.
Í öðru sæti er Jana Katrín Knútsdóttir bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur með 499 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 57,4% atkvæða.
Í þriðja sæti er Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari með 300 atkvæði í 1. – 3. sæti eða 34,5% atkvæða.
Í fjórða sæti er Hjörtur Örn Arnarson landfræðingur með 487 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 56% atkvæða.
Í fimmta sæti er Þórarinn Örn Andrésson framkvæmdastjóri með 357 atkvæði í 1. – 5. sæti eða 41,1% atkvæða.
Í sjötta sæti er Ásgeir Sveinsson bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri með 383 atkvæði í 1. – 6. sæti eða 44,1% atkvæða.
Í sjöunda sæti er Magnús Ingi Ingvarsson framkvæmdastjóri með 456 atkvæði í 1. – 7. sæti æti eða 52,5% atkvæða.
Í áttunda sæti er Brynja Hlíf Hjaltadóttir lögmaður með 520 atkvæði í 1. – 8. sæti eða 59,8% atkvæða.
Þrettán gáfu kost á sér í prófkjörinu og kosið var um 8 efstu sætin. Alls tóku 895 þátt í prófkjörinu. Kjörsókn var 41%. Auðir og ógildir seðlar voru 26.
Hér má sjá sundurliðaðar niðurstöður í átta efstu sætin.
Listi yfir efstu átta úr prófkjörinu:
- sæti Hilmar Gunnarsson með 799 atkvæði
- sæti Jana Katrín Knútsdóttir með 499 atkvæði
- sæti Elísabet S. Ólafsdóttir með 300 atkvæði
- sæti Hjörtur Örn Arnarson með 487 atkvæði
- sæti Þórarinn Örn Andrésson með 357 atkvæði
- sæti Ásgeir Sveinsson með 383 atkvæði
- sæti Magnús Ingi Ingvarsson með 456 atkvæði
- sæti Brynja Hlíf Hjaltadóttir með 520 atkvæði

