31. janúar 2026

Fjölmennasta prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason var í dag kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ í leiðtogaprófkjöri flokksins sem fram fór í dag. Hlaut hann 1.037 atkvæði, sem jafngildir 56,8% af gildum atkvæðum og mun því verða bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara 16. maí nk.

Alls tóku 1.861 manns þátt í prófkjörinu og var kjörsókn 51,6%. Um er að ræða fjölmennasta prófkjör sem haldið hefur verið í sögu Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.

Í öðru sæti lenti Ásgeir Elvar Garðarsson með 510 atkvæði eða 28% af gildum atkvæðum og í þriðja sæti lenti Unnar Stefán Sigurðsson með 277 atkvæði eða 15,2% af gildum atkvæðum.

Prófkjörið fór fram með hefðbundnum hætti og gekk framkvæmd þess vel. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir formaður yfirkjörstjórnar segir að allt hafi gengið vel og að framkvæmd kosninganna hafi verið hnökralaus. Niðurstöður prófkjörsins hafa nú verið staðfestar af yfirkjörstjórn.